Bekkjatenglar
Á vefsíðu Heimilis og skóla kemur fram að niðurstöður rannsókna sýni að samskipti foreldra og skóla hafa jákvæð áhrif á skólastarf. Ávinningur samstarfsins er meðal annars fólginn í:
Það er því mikill akkur í því fyrir báða aðila að samstarfið sé gott og byggist á gagnkvæmu trausti, samábyrgð og virðingu. Þar skipa bekkjarfulltrúar stóran sess en þeir eru tengiliðir heimilanna við skólann.
Hlutverk bekkjarfulltrúa er að stuðla að auknu samstarfi foreldra, kennara og nemenda innan hvers bekkjar. Foreldrar eru kosnir á námsefniskynningu á haustin. Æskilegt er að þeir gefi kost á sér til tveggja ára í senn, kosnir séu tveir til þrír úr hverjum bekk og ekki sé skipt um alla í einu. Stjórn foreldrafélagsins heldur fund með bekkjarfulltrúum fljótlega eftir að skólinn hefst að hausti og kynnir þeim verklag og hefðir í foreldrastarfinu. Tveir aðrir fundir eru haldnir seinna á skólaárinu.
Mikilvægt er að árgangar samhæfi dagskrá vetrarins á milli bekkja þannig að dagskrá þeirra sé svipuð en þar með minnka líkur á meting á milli bekkja. Varðandi greiðslur í bekkjarsjóð sem ætlaður er að standi straum af kostnaði við bekkjarskemmtanir vetrarins er algengt að foreldrar greiði í sjóðinn við upphaf skólaárs. Upphæðin er miðuð við dagskrá vetrarins og áætlaðan kostnað vegna hennar. Mismunandi er hvernig bekkjarfulltrúar innheimta í bekkjarsjóðinn, á meðan sumir bekkir eru með reikning í netbanka sem foreldrar leggja inn á eru aðrir sem geyma bekkjarsjóðinn í læstu hólfi í skólanum og börnin koma með umbeðna upphæð í skólann.
Starfsfólk Heimilis og skóla leggur áherslu á að foreldrasáttmálinn sé lagður fyrir í öllum árgöngum og er ætlunin að hann fylgi börnunum frá ári til árs og taki nauðsynlegum breytingum í takt við aldur barnanna. Gott er að bekkjarfulltrúar í samstarfi við umsjónarkennara sjái um fyrirlögn foreldrasáttmálans t.d. á námsefniskynningu að hausti. Hafið samband við foreldrafélagið (foreldrafelaghjáaslandsskoli.is) ef þið viljið fá eintök af foreldrasáttmálanum eða leiðbeiningar um fyrirlögn.
Í handbók foreldrafélaga grunnskóla sem Heimili og skóli gaf út í apríl 2010 má sjá nánari skilgreiningu á starfsreglum bekkjarfulltrúa. Hluta þeirra má sjá hér.
- betri líðan barna í skólanum
- auknum áhuga og bættum námsárangri
- auknu sjálfstrausti nemenda
- betri ástundun og minna brottfalli
- jákvæðara viðhorfi foreldra og nemenda til skólans
- auknum samtakamætti foreldra í uppeldis og menntunarhlutverkinu
Það er því mikill akkur í því fyrir báða aðila að samstarfið sé gott og byggist á gagnkvæmu trausti, samábyrgð og virðingu. Þar skipa bekkjarfulltrúar stóran sess en þeir eru tengiliðir heimilanna við skólann.
Hlutverk bekkjarfulltrúa er að stuðla að auknu samstarfi foreldra, kennara og nemenda innan hvers bekkjar. Foreldrar eru kosnir á námsefniskynningu á haustin. Æskilegt er að þeir gefi kost á sér til tveggja ára í senn, kosnir séu tveir til þrír úr hverjum bekk og ekki sé skipt um alla í einu. Stjórn foreldrafélagsins heldur fund með bekkjarfulltrúum fljótlega eftir að skólinn hefst að hausti og kynnir þeim verklag og hefðir í foreldrastarfinu. Tveir aðrir fundir eru haldnir seinna á skólaárinu.
Mikilvægt er að árgangar samhæfi dagskrá vetrarins á milli bekkja þannig að dagskrá þeirra sé svipuð en þar með minnka líkur á meting á milli bekkja. Varðandi greiðslur í bekkjarsjóð sem ætlaður er að standi straum af kostnaði við bekkjarskemmtanir vetrarins er algengt að foreldrar greiði í sjóðinn við upphaf skólaárs. Upphæðin er miðuð við dagskrá vetrarins og áætlaðan kostnað vegna hennar. Mismunandi er hvernig bekkjarfulltrúar innheimta í bekkjarsjóðinn, á meðan sumir bekkir eru með reikning í netbanka sem foreldrar leggja inn á eru aðrir sem geyma bekkjarsjóðinn í læstu hólfi í skólanum og börnin koma með umbeðna upphæð í skólann.
Starfsfólk Heimilis og skóla leggur áherslu á að foreldrasáttmálinn sé lagður fyrir í öllum árgöngum og er ætlunin að hann fylgi börnunum frá ári til árs og taki nauðsynlegum breytingum í takt við aldur barnanna. Gott er að bekkjarfulltrúar í samstarfi við umsjónarkennara sjái um fyrirlögn foreldrasáttmálans t.d. á námsefniskynningu að hausti. Hafið samband við foreldrafélagið (foreldrafelaghjáaslandsskoli.is) ef þið viljið fá eintök af foreldrasáttmálanum eða leiðbeiningar um fyrirlögn.
Í handbók foreldrafélaga grunnskóla sem Heimili og skóli gaf út í apríl 2010 má sjá nánari skilgreiningu á starfsreglum bekkjarfulltrúa. Hluta þeirra má sjá hér.
- Hlutverk bekkjarfulltrúa er að efla og styrkja samstarf foreldra/forráðamanna og nemenda auk þess að leitast við að treysta samband heimila og skóla innan hverrar bekkjardeildar.
- Bekkjarfulltrúar eru tengiliðir foreldra við umsjónarkennara og koma sjónarmiðum foreldra á framfæri þegar þess er þörf. Í samvinnu við kennara skipuleggja þeir í upphafi skólaárs almennan fund með foreldrum (á eftir námsefnisfundi) þar sem bekkjarstarf vetrarins er skipulagt og foreldrasáttmáli Heimilis og skóla ræddur.